| Ánægð ? Já ! Heimsreisuferðavön ? Nei ! |
Hvar: Í Leifsstöð.
Hvenær: Rétt fyrir brottför.
Kári: (eftir að við erum bæði búin að fara alla leið á tilfinningaskalanum með þessa ferð, og búin að þjást af stressi og efasemdum síðastliðinn sólarhring) ,,Veistu, ég finn það núna, tilfinningin er að breytast aftur. Þetta er ekki lengur stress og bugun, ég finn að ég verð spenntari með hverri mínútunni sem líður" - sagði hann og sturtaði ofan í sig síðasta sopanum af bjór nr. 2
Sif: ,,Well hello alcohol" :)
- Gullkorn ferðarinnar nr. 1 -
Jebb, við erum farin. Í heimsreisu. Jibbí !! Við föttuðum það held ég ekki almennilega fyrr en eftir að við löbbuðum út af flughótelinu rétt hjá Gatwick flugvelli kl. 11.00 þann herrans dag 1. október síðastliðinn, eftir að hafa komið þangað seint kvöldið áður. Eftir ca. 5 mínútna rölt í átt að lestarstöð, hálfvillt, en með kort í höndunum, vatt heldri maður sér upp að bakpokalingunum og spurði hvort hann gæti hjálpað þeim. Eftir að hafa þegið leiðbeiningar hans áttuðum við okkur á því... the tables had been turned, við vorum orðnir útlensku lúðarnir sem maður spurði góðfúslega hvort maður gæti aðstoðað þegar þeir snérust í hringi á Skólavörðuholtinu, með risastóra bakpoka og allt of vel klæddir, á sama tíma og maður velti fyrir sér hvernig þeir nenntu þessu eiginlega!! Það var vægast sagt afar spes upplifun.
| Lundúnir hringja ! |
Örstutt aftur að hótelinu sem hýsti okkur fyrstu heimsreisunóttina. Sif bókaði hótelið í gegnum hostelworld.com, en eftir að hafa rennt yfir tugi hótela sem öll kostuðu 45-70 pund nóttin rakst snótin á eitt í sömu gæðum, sem af einhverjum ástæðum kostaði 5 pund nóttin! Það var auðvitað neglt, vitandi að þetta var of gott til að vera satt og einhverskonar mannleg mistök. Við komuna hló starfsmaðurinn í lobbýinu líka þessi reiðarinnar býsn þegar við sýndum honum e-mail bókunina og 5 punda verðmiðann, svart á hvítu, og sagði að þetta væru mistök, hann ætlaði að greiða úr þessu og við yrðum rukkuð í fyrramálið þegar við færum. Um morguninn bjó ég mig undir nýtt þorskastríð og ætlaði ekkert að gefa bretunum neitt eftir, enda með bókunarstaðfestingu í höndunum. Það reyndist alveg óþarfi þar sem nýja gæjanum í lobbýinu virtist meira sama þar sem hann spurði bara hvernig okkur tókst að fá þetta verð sem væri ekki fyrir kostnaði, hló og rukkaði okkur um 5 pund ! Sif 1, London 0. Í þokkabót tókst undirrituðum að slá út rafmagninu á meirihluta hótelsins þegar hann var að bjástra við að troða nýju dýru fínu international ,,breytaúríslenskuíútlenskt" klónni sinni í samband, með tilheyrandi eldglæringum og bráðnun á innstungunni og nýju fínu klónni! Í stað þess að tilkynna glæpinn laumuðumst við undir sæng og reyndum að sofna svefni hinna ,,réttlátu". Við búumst ekki við að vera efst á vinsældarlista hótelsins :) Þessi herlegheit urðu þó til þess að LED höfuðljósin sem keypt voru sérstaklega fyrir dimm moment voru kosin ,,gadged ferðarinnar" á staðnum.
| Afleiðingarnar (brunarústirnar) kannaðar |
Eftir að hafa rölt um Oxford street + hliðargötur í hálfan dag, og komist að því að okkur langaði núll að versla og helst að komast sem fyrst á meira framandi slóðir, tókum við lest til Jón Páls frænda, Oddrúnar og strákanna þeirra tveggja, sem búa ca. 40 mín frá central London. Þar beið okkar herbergi með uppábúnum rúmum og vorum við í góðu yfirlæti hjá þeim í tvo daga, slöppuðum af og notuðum tímann til að græja síðustu hlutina sem náðust ekki fyrir brottför. Hver máltíð hjá þeim var eins og síðsta kvöldmáltíðin þar sem Johnny sýndi snilli sína á grillinu á meðan Oddrún töfraði fram dýrindis eftirrétti, enda hugsuðum við með söknuði til kræsinganna hjá þeim þegar við settumst upp í vélina til Nairobi, óviss um hvað yrði á matseðlinum næstu vikurnar. Takk æðislega fyrir okkur Jón og Oddrún, hyggjumst hefja öll okkar ferðalög í London hér eftir ;)
Eftir að Jón skutlaði okkur upp á flugvöll að morgni 3. okt. voru svo síðustu nauðsynjarnar keyptar, m.a. cirka líter af industrial moskítóvörn með hámarks Deetstuðli upp á 50% (sem þýðir basically að allt kvikt deyr af því) og nýja international kló (hóst). Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum var Sif svo hleypt í gegnum öryggisleit og upp í flugvél, þrátt fyrir að líta út eins og næsti foringi Al-Kaida í hermannaoutfitinu sínu, sem var meðvitað keypt til að líta fátæklega út í Nairobi og verða þannig eigi glæpamönnum að bráð.
Komum betur að því síðar, over and out !¨
